Opnið gluggann Samstæða - Prófjöfnuður (4).
Sýnir prófjöfnunarskýrslu fyrir samsteypufyrirtæki. Aðeins er hægt að nota þessa skýrslu fyrir samsteypufyrirtæki sem eru myndaðar af fjórum fyrirtækiseiningum eða færri. Ef fyrirtækiseiningar eru fleiri en fjórar má nota skýrsluna Samstæða - Prófjöfnuður. Áður en unnt er að taka fyrirtækiseiningu með í skýrsluna, verður að setja hana upp í töflunni Fyrirtækiseining og fá reitinn Steypa saman sem var valinn.
Sérhver reikningur birtist einn sér í línu, (í framhaldi af uppbyggingu bókhaldslykils). Reikningur birtist ekki ef allar upphæðir á línunni standa á núlli. Eftirfarandi upplýsingar koma fram um hvern reikning:
-
Reikningur nr.
-
Heiti reiknings
-
Samtala hverrar fyrirtækjaeiningar í sérstökum dálki. Samtala getur annað hvort birst sem hreyfing eða staða til dags.
-
Samtala samsteypufyrirtækis kemur fram annað hvort sem hreyfing eða staða til dags.
-
Útilokanir, gerðar í bókhaldi samsteypufyrirtækis. Það er ávallt sýnt fyrir tímabil sem samsvarar reikningsári samsteypufyrirtækis.
-
Samtala samsteypufyrirtækis, að loknum útilokunum, kemur fram annað hvort sem hreyfing eða staða til dags.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphafsdagsetning | Færa skal inn fyrstu dagsetningu tímabils bókaðra færslna sem munu koma fram í bókhaldi samsteypufyrirtækis. |
Lokadagsetning | Færa skal inn síðustu dagsetningu tímabils bókaðra færslna sem fram koma í bókhaldi samsteypufyrirtækis. |
Sýna | Velja skal hvort upphæðir skuli koma fram sem hreyfingar eða staða frá deginum í dag að telja. |
Upphæðir í heilum 1000 | Gátmerki er sett í reitinn ef slétta á upphæðir í skýrslunni að heilum 1000. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með skýrslur eru í Skoða prófunarskýrslur fyrir bókun, Hvernig á að skoða og prenta skýrslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |